stjanigunnars.com
Vefmælingar sýna að verð í körfu hefur mikil áhrif kláruð kaup í vefverslun
Kemur mér á óvart hvað þetta eru skýrar niðurstöður.
Glæsilegt dæmi um hvernig má nota vefmælingar í vefverslun þar sem greining á 264631 körfum gefa glögga mynd af kauphegðun. (Does Price Influence Cart Abandonment? You Better Believe It)
Væri gaman að sjá svipaðar tölur frá íslandi, en ég giska á að 9.900 sé sambærilegt verð. Eða er 10þ kallinn orðin 20þ kall á Íslandi í dag?
Hvað finnst ykkur?

Ef þú reynir að plata fólk þá verður þér refsað
Fullt af góðum dæmum.
Hér er linkbait, um linkbait, frá linkbait, til linkbait

Created By Voltier Creative South Florida SEO
Ertu viss um að næsta kynslóð nenni út í búð?
Íslensk vefverslun er afskaplega skammt á veg komin. Netverslun eða sala á netinu er rétt að slíta barnsskónum, vefverslanir eru fáar og flestar hafa hefðbundna búð á bakvið sig. Ekki hjálpar til að flestir íslendingar búa á sama stað, svo algengt söluferli á netinu er að fólk finnur vörur á netinu, pantar og borgar, en tekur svo upp símann og athugar hvort það megi ekki bara skutlast eftir þessu. Ég heyri líka oft þá skýringu að Íslendingar hreinlega versli ekki á netinu. Þrátt fyrir þetta þekkjum við ótrúlegasta fólk sem hefur án vandræða pantað sér vörur á E-bay eða Amazon.
Erum við allt of fá til að það borgi sig fyrir verslanir á íslenskum markaði að fjárfesta í vefverslun? Kostnað þarf að miða við eitthvað og því spyr ég yfirleitt á móti: “Hvað kostar að opna nýja búð? Leiga á húsnæði, tækjakostur, innréttingar, þjálfun á starfsfólki, launakostnaður, vörulager og svo mætti lengi telja. Síðan þarf að auglýsa búðina, finna henni réttan stað og vonast til þess að viðskiptavinir hafi fyrir því að mæta á staðinn og að opnunartíminn sé í samræmi við óskir viðskiptavinarins.
Fólk sem rekur búðir með góðum árangri og þekkir þann heim, veit hvað hlutirnir kosta og hefur reynslu sem nýtist þeim í starfi. Reynsla af vefverslun er lítil, fólk hræðist það sem er óþekkt og þess vegna eru vefverslanir á Íslandi ennþá i leikskóla, ef svo má að orði komast. Þegar maður er í leikskóla, þá kann maður ekki að taka myndir af vörunum, raða í hillur vefverslunarinnar, skrifa góðar vörulýsingar, setja hlutina á réttan stað, hanna skiltin svo þau beini manni í rétta átt og gera verslunarferðina að ánægjulegri upplifun, sem byggir á trausti en ekki tortryggni.
Kostnaður við að koma sér upp verslun á netinu er mjög misjafn. Þar hanga gæði og verð mjög vel saman, en ég skal lofa þér því að það er ódýrara að opna vefverslun en að opna nýja búið. Ég er semsagt að leita að fyrirtækjum sem langar í barnaskóla, taka samræmdu prófin með stæl, leggja grunn að háskólanámi og fylgja viðskiptavinum sínum í þeirri þróun sem er að eiga sér stað á netinu.
Ef þú ert að reka hefðbundna verslun eða þjónustu og trúir ekki á vefverslun á Íslandi, þá verður þú líka að vera viss um að næsta kynslóð nenni út í búð?
Einhverjar spurningar?
Númer frambjóðenda gert hluti af nafni Facebook síðu
Það er ljóst að stór hluti kyningar á frambjóðendum mun fara fram á Félagsmiðlum á netinu. Facebook miðillinn verður eflaust mikið notaður ásamt bloggsíðum og óvæntum uppákomum sem koma manni í fréttirnar (Atvinnulausum bílstjóra fleygt út úr lúxusveislu). Það er áskorun að koma sér á framfæri og maður spyr sig, er uppákoma líkt og sú sem lýst er hér að ofan frambjóðenda til framdráttar? Lesið ummælin við fréttina og dæmið sjálf.
Númer frambjóðanda til stjórnlagaþings skeitt við nafn Facebook síðu
Öllum frambjóðendum til stjórnlagaþings hefur verið úthlutað fjögurra stafa auðkennisnúmeri. Hluti af kynningu frambjóðenda er að gera aðkennisnúmer sitt sýnilegt. Það má t.d. gera með því að skeita númerinu við nafn Facebook síðu. Skjáskotið sýnir hversu sáraeinfalt það er að bæta auðkennisnúmeri sínu við nafn Facebook síðu.
Stjórnlagaþing – Númer frambjóðenda gert hluti af nafni Facebook síðu
Endilega skellið inn ummælum ef þið hafið fleiri spruningar.
10 Skref – Stjórnlagaþing Facebook Síða Fyrir Stefnumál
Frábært hvað margir hafa boðið sig fram til stjórnlagaþings. Þekki sjálfur nokkra sem ákváðu að gefa kost á sér. Hlakka til að fylgjast með því hvernig fólki gengur að koma sér á framfæri. Efast ekki um að Facebook mun nýtast vel til að ná til fólks og kynna stefnumál. Fékk nokkrar fyrirspurnir í dag um hvernig maður getur komið stefnumálum sínum fyrir stjórnlagaþing á Facebook. Hér er dæmi um hvernig má bera sig að.
Reyni að hafa þetta ofur-einfalt með skýringarmyndum svo allir geti verið með. Ummæli og spurningar velkomnar neðst á síðunni. Tekur c.a. 15 min að rúlla í gegnum þetta
Ef vel tekst til ættir þú að enda með Facebook flipa með Stefnumálum fyrir Stjórnlagaþing eins og sýnt er hér að neðan

Facebook flipar – gott að vita fyrir nörda (þarf ekki að skilja til að búa til flipa)
- Static FBML (Facebook flipa) er BARA hægt að gera á Facebook Fan síðum (semsagt ekki hægt að persónulegum facebook síðum)
- Ef þú kant að vinna með HTML/CSS til að stjóna útliti, þá má það aðeins vera innan <body> og </body>
- Ekki nota <style type=”text/css”> til að stjórna útliti, það virkar ekki í Internet Explorer vöfrum
- Til að bæta FBML flipa við síðuna, þá þarftu að vera skráður inn á Facebook og hafa búið til Facebook fan síðuna sjálf(ur) eða vera admin á síðunni.
- Smellið á Edit Pages fyrir neðan kennimynd Facebook síðunar. (ef þú finnur það ekki, þá ertu sennilega ekki að skoða Facebook fan síðu, heldur þína persónulegu síðu. Smelltu hér ef þú átt eftir að búa til Facebook fan síðu)

- Skrunið neðst á síðuna og smellið á Static FBML. Ef þú finnur það ekki þá er hér hlekkur beint á Facebook Static FMBL síðuna
- Smellið á 1- Add to my page. 2 – Add to Page og 3 – Close, eins og sýnt er á myndinni hér að neðan.

- Þá er búið að bæta við Facebook FBML á síðuna þína. Til að komast aftur á síðuna þarf að velja Account og Manage Pages.

- Smellið nú aftur á Edit Pages fyrir neðan kennimynd Facebook síðunar.

- Skrunið niður, finnið FBML 1 og veljið edit

- Þá er bara eftir að hamra inn Stefnumálum. (dæmi fyrir neðan mynd)

Afritið dæmið hér að neðan með dæmum um fyrirsagnir og meginmál. Auðveldast fyrir þá sem ekki kunna að kóða að breyta bara textanum milli <h1>texti</h1>. <h1> þýðir fyrirsögn 1 <h2> fyrirsögn 2 og <p> meginmál. Passið að enda öll tög, eins og sýnt er í dæminu, svo þetta fari ekki allt í rugl
<h1>Ný Stjórnarskrá</h1>
<h2>Stefnumál 1</h2>
<p>Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Donec erat sem, adipiscing vel molestie sit amet, pharetra a dui. Suspendisse non ligula purus, non faucibus </p>
<h2>Stefnumál 2</h2>
<p>Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Donec erat sem, adipiscing vel molestie sit amet, pharetra a dui. Suspendisse non ligula purus, non faucibus </p> - Þegar textinn er tilbúinn er vistað með því að smella á Save Changes
- Farðu nú aftur á siðuna þína og þá á að vera komin flipi sem heitir Stefnumál. (ef þú sérð hann ekki reyndu þá að leita undir >>) Þú getur endurraðað flipum með því að draga þá til með músinni.

- Að lokum getur þú valið að fólk sem hefur enn ekki gert Like á síðuna lendi á ákveðnum flipa (t.d. stefnumál). Það er gert í Edit page (sjá skref 5) – Veljið Edit í Wall Settings – Veljið hvaða flipa á að birta fyrir aðra en þá sem hafa gert Like á síðuna.

Vona svo sannarlega að þetta komi einhverjum að gagni. Spurningar og ummæli vel þegin hér að neðan.



